Kia ora (halló) kveðja frá Nýja-Sjálandi! Landinu sem býður upp á heillandi útsýni, sauðfé á beit og krakka sem spila ruðning. Ef þú hefur gaman af útiveru, nýtur þess að grilla, slappa af og hitta nýtt fólk er þetta rétti staðurinn fyrir þig. Nýja-Sjáland er suðupottur evrópskrar, asískrar og kyrrahafsmenningar sem er undir miklum áhrifum frá Maórí-frumbyggjum.
Unglingarnir stunda allar tegundir íþrótta, þar á meðal ruðning, krikket, netbolta, fótbolta, „ultimate frisbee“ og sundknattleik. Einnig er hægt að leggja stund á brimbrettabrun og fara í hvalaskoðun frá einhverri af hinum dýrlegu ströndum Nýja-Sjálands!