Mexíkóar búa að rótgróinni hefð sem birtist í þjóðsögnum, listrænni tjáningu og fjölbreytilegri menningu þeirra, enda afkomendur Asteka og Maya. Þetta víðfeðma land eyðimarka, frumskóga, fjalla og stranda býður einnig upp á athyglisverða nútímabyggingarlist. Ekki missa af tækifærinu til að fylgjast með líflegum samskiptum á bæjartorgum þar sem matar- og handverksmarkaðir skipa stóran sess.
Mexíkóskir unglingar láta sér annt um fjölskylduna, skólann og íþróttir. Þeir fara líka í bæinn með vinum sínum, í bíó, út að dansa og skemmta sér.