Kanada býr yfir mikilli fegurð og fjölbreyttu landslagi enda annað stærsta land í heimi. Kanada menn eru sérstaklega þekktir fyrir gestrisni og kurteisi. Í Kanada eru tvö opinber tungumál, enska og franska en skiptinemar sem fara til Kanada fara til frönskumælandi hlutans. Kanada er staður fyrir náttúrunnendur en það sem gerir náttúruna í Kanada áhugaverða eru árstíðirnar og hvernig þær breyta umhverfinu algjörlega. Að upplifa kanadískan vetur er ótrúlegt og þar eru mjög margar vetrarafþreyingar í boði eins og að fara á skauta, skíði eða stunda ísveiðar.
Kanadísk ungmenni eru dugleg að sinna ýmsum áhugamálum, t.d. íþróttum, músík og leiklist. Einnig er algengt að ungmenni vinni með skóla, t.d. við að passa börn eða í verslunum.