Stutt sumarnámskeið þar sem þátttakendur öðlast betri færni í ensku og menningarlæsi ásamt því að kynnast hópi ungmenna frá öllum heimshornum.
AFS á Íslandi býður uppá námskeið í tungumálaskólanum í samvinnu við AFS/Roeland í Belgíu og hefur sent 13-18 ára íslensk ungmenni til Sutton Valence frá 2015. Samanlagt eru þessir aðilar með áratuga reynslu af námskeiðahaldi og vinnu með ungmennum.
Á námskeiðinu er fjöldi sjálfboðaliða og starfsfólk frá bæði AFS og belgíska samstarfsaðilanum Roeland. Allir sem koma að námskeiðinu hafa hlotið þjálfun og eru vottaðir AFS leiðbeinendur. Hlutfall leiðbeinanda er 1 á hverja 4 þátttakendur.
Þátttakendur dvelja í ekta breskum heimavistaskóla í Sutton Valence, þar sem frábær aðstaða er til tónlistar-og íþróttaiðkunar. Á staðnum er innilaug, dansstúdíó og tónlistahús. Ennfremur er frjálsíþróttavöllur og vellir til að stunda krikket, rúgbí, hokkí, fótbolta, tennis og lacrosse.
Þetta er í fimmta skipti sem AFS á Íslandi sendir þátttakendur á þetta námskeið en meðal ummæla fyrri þátttakenda er: „Ég myndi helst vilja fara á hverju ári eftir þetta.“.
Innifalinn er: flugkostnaður, fararstjóri, fullt fæði í 13 daga, gisting í breskum heimavistarskóla, tvær borgarferðir, gagnvirkt tungumálanám í 4 klst á dag, 5 vinnustofur um menningarlæsi og alþjóðleg samskipti, fjölbreytt afþreying og fræðsla.
Borgarferðirnar eru dagslangar og alltaf er farið til London í annarri en misjafnt hvort farið er til Brighton eða Canterbury í hinni.
Tungumálanámið fer fram í litlum hópum sem eru getuskiptir. Ekki er um eiginlegt bóknám að ræða heldur gagnvirkt og lifandi nám sem miðar að því að auka færni þátttakenda.
Mikil afþreying er í boði á meðan dvöl stendur og meðal annars má reikna með þemadögum: Alþjóðadegi, Breskum degi, Fright Night, Hollywood og fleiri skemmtileg þemu sem leiðbeinendur plana fyrir þátttakendur.
Fjölbreytt val er um hvers kyns vinnustofur þátttakandi getur prófað. Meðal annars: leikhús, tónlist, eldamennska, crazy sports og survival!
Herbergi þátttakenda á heimavistaskólanum eru einstaklings, tvímennings og þrímennings.
**Þátttakendum í yngri hóp er fylgt í fluginu til og frá Bretlandi.
Eldri hópur er sóttur á flugvöllinn í Bretlandi og fylgt að dvalarstað í Kent.