Tæland, hliðið að Suðaustur-Asíu, laðar til sín fleiri ferðamenn en nokkuð annað land í sínum heimshluta, enda er landslagið ægifagurt og landið státar af ríkulega skreyttum hofum, auðugri matarmenningu og rústum ævafornra konungsríkja. Þú færð að kynnast heillandi og einstakri menningu, dásamlegum mat, hugleiðslu, búddahofum og markaðstorgum sem iða af lífi langt fram á kvöld.
Skólinn er miðpunkturinn í lífi taílenskra ungmenna og allt félagslíf þeirra snýst um skólann. Að fara í bíó og horfa á sjónvarp er vinsælasta afþreyingin en vinsælustu íþróttagreinarnar eru fótbolti, borðtennis, badminton, og blak. Fæst ungmenni í Tælandi nota áfengi eða tóbak.