Aðalfundur AFS á Íslandi verður haldinn kl. 14:00, laugardaginn 19. október í húsnæði samtakanna í Skiptholti 50c, 4. hæð.
Fundarefni:
- Skýrsla stjórnar.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins.
- Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
- Skýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar bornir undir atkvæði fundarmanna.
- Breytingar á samþykktum félagsins.
- Kjör formanns félagsins til eins árs.
- Stjórnarkjör í samræmi við 21. gr. samþykktanna.
- Kjör löggilts endurskoðanda og eins skoðunarmanns úr röðum félagsmanna.
- Kjör kjörnefndar í samræmi við 19. gr. samþykktanna.
- Ákvörðun félagsgjalds.
- Önnur mál.
Hér má finna hlekk á viðburðinn á Facebook. Þar má finna allar nánari upplýsingar.
Vonumst til að sjá sem flesta!