Subpage-banner-27

Skiptinemar á Íslandi 2010-2011

AFS á Íslandi leitar að fjölskyldum sem vilja hýsa erlenda skiptinema tímabilið 2010-2011, þ.e. frá ágústlokum 2010 til loka júní 2011. Ráðgert er að taka á móti tuttugu og fimm erlendum nemum fyrir þetta tímabil og hér að neðan má sjá nokkra þeirra sem þegar hafa verið samþykktir til dvalar. Við munum bæta inn upplýsingum um krakkana jafnóðum og við höfum þær tiltækar þannig að áhugasamir ættu að koma reglulega inn á þessa síðu!

Sjá nánar hér á síðunni til hægri – Upplýsingar fyrir verðandi fósturfjölskyldur.

Alexander James McSporran

fæddist 25. október 1993. Hann kemur frá Hastings á Nýja-Sjálandi. Alexander er yngstur þriggja systkina. Hann hefur áhuga á tónlist, menningartengdum viðburðum og ferðalögum og stefnir á að ljúka háskólagráðu í landafræði eða garðyrkjufræðum.

Alexandra Caroline Cecile Llouquet

er frá Torcy sem tilheyrir úthverfi Parísar í Frakklandi. Hún fæddist 2. desember 1994 og býr í litlu húsi ásamt foreldrum sínum, tveimur systrum og hundinum sínum. Alexandra hefur áhuga á og stundar dans, leiklist og söng. Hún hefur gaman af skáldsögum.

Alice Demurtas

er frá Jerzu á Ítalíu og fæddist 13. febrúar 1993. Alice er góður námsmaður sem hefur gaman af því að lesa bækur, elda, hlutsta á tónlist eða teikna og mála myndir.

Anna Saeki

fæddist 6. maí 1993 og er frá Japan. Hún býr með foreldrum sínum og yngri systur í borginni Kyoto. Hún hefur áhuga á sögu almennt, æfir ballet og hefur síðastliðin ár lært japanska blómaskreytingarlist. Hún hefur auk þess gaman að fara á söfn og á listasöfn þar sem hún hefur áhuga á arkitektúr og hönnun.

Aoi Kimura

fæddist 8. ágúst 1993 og er frá Japan. Hún býr í bænum Mie ásamt móður sinni og yngri systur. Aoi er dæmigerð unglingsstúlka sem hefur gaman af tónlist, tísku og að versla. Hún hefur áhuga á innanhúshönnun. Hún sótti um að fara sem skiptinemi þar sem hún vonast til að læra menningu okkar og arfleið og upplifa hversu ólíkt íslenskt samfélag er hinu japanska.

Eva Vandyck

er frá flæmskumælandi Belgíu. Hún fæddist 26. apríl 1992 og verður því 18 ára í vor. Eva á tvo bræður og tvo hunda og býr ásamt foreldrum sínum í bænum Bree. Eva er skáti og skátaforingi fyrir yngri krakka. Evu langar til að læra samskiptafræði eða menningarfræði í háskóla. Áhugamál hennar eru ferðalög, menning, föt og ljósmyndum.

Laetitia Gathion

er frá Larnage í Frakklandi. Hún fæddist 9. janúar 1995. Laetitia hefur gaman af tónlist. Hún æfir badminton. Henni finnst gaman að fara í bíó, vafra um á Netinu og taka ljósmyndir. Í framtíðinni langar hana að verða túlkur eða frönskukennari í útlöndum.

Lara Bauden

er frá frönskumælandi Belgíu. Hún fæddist 26. nóvember 1992. Lara býr með móður sinni í bænum Berloz. Faðir hennar býr á Ítalíu ásamt stjúpmóður og stjúpbróður Laru. Hún óskar eftir að komast á heimili þar sem eru börn. Lara er lestrarhestur, hefur áhuga á tónlist og reynir að fara í sund einu sinni í viku. Í framtíðinni langar hana að verða þýðandi.

Laura Cozzi

er frá Potenza á Ítalíu. Hún fæddist 4. nóvember 1993 og er því 16 ára. Hún býr með foreldrum sínum og tveimur systkinum sem eru á svipuðum aldri og hún. Laura er mikill dýravinur, hún æfir dans og kung fu. Laura hefur gaman af ljósmyndun.

Loic Worbe

fæddist 13. október 1993 og er frá Champcevinel í Frakklandi. Á heimilinu eru báðir foreldrar, eldri bróðir og hundur. Loic hefur áhuga á menningu, landafræði, sögu og náttúrunni. hann spilar badminton og hefur gaman að því að lesa bækur ýmiss konar. Hann er kaþólskur og hefur verið til aðstoðar við kirkjuna sína. Hann vill endilega eiga færi á að sækja kaþólska kirkju og vonast eftir að eignast fóstursystkini á Íslandi.

Luis Miguel Hernandez

fæddist 12. júlí 1993. Hann býr í Ciudad Ojeda í Venesúela ásamt foreldrum, fjórum bræðrum, mágkonu og litlum frænda. Hann hefur gaman af því að fara út að borða með vinum sínum og í bíó. Luis vill koma hingað með AFS þar sem hann lítur á það sem stórt tækifæri til þess að skilja aðra menningu og læra nýja hluti sem geta hjálpað honum seinna í lífinu. Miguel er kaþólskur og vill sækja kirkju einu sinni í viku.

Malin Hanna Peter

fæddist 29. ágúst 1994 og er frá Þýskalandi. Hún býr í háskólabænum Göttingen ásamt foreldrum sínum og tveimur eldri systrum. Malin spilar á fiðlu og æfir samkvæmisdansa. Hún hefur gaman af góðum glæpamyndum og hlusta á tónlist. Malin hefur gaman af því að teikna og mála. Heima hjá henni er nú skiptinemi og hefur hún upplifað það að vera fóstursystir sem hún segir að sé áhugaverð lífsreynsla og vonast til að geta veitt hugsanlegum fóstursystkinum sömu jákvæðu upplifunina og hún hefur upplifað.

Matteo Caneva

fæddist 4. maí 1993 og býr í litlum bæ á Sardiníu. Hann býr með móður sinni, tveimur hundum og ketti. Hann hefur áhuga á tölvum, les mikið og hefur gaman af skáldsögum. Matteo langar að verða tölvutæknifræðingur eða rafvirki í framtíðinni.

Nina Mohr

er frá Zürich í Sviss og fæddist 13. júní 1994. Nina hefur áhuga á útivist, fjallgöngu, klifri og sundi. Hún hlustar á og semur tónlist en hún spilar á fiðlu. Henni finnst gaman að fara út að hlaupa og hjóla og reynir að klifra a.m.k einu sinni í viku.

Nora Baer

er frá Basel í Sviss og fæddist 2. október 1994. Nora er í kór og er í söngtímum samhliða. Helsta áhugamál hennar er umhverfisvernd. Hún er náttúruunnandi og stundar útivist. Þar sem Nora er eina barnið í fjölskyldunni vill hún endilega búa hjá fósturfjölskyldu sem á börn.

Phil Uwe Widiger

fæddist 19. desember 1993. Hann er frá Stendal í Þýskalandi. Phil hefur áhuga á tungumálum, náttúruvernd og tónlist. Hann semur tónlist og ljóð, leikur á gítar og er í hljómsveit með vinum sínum. Hann vill gjarnan fara í hljómsveit á Íslandi. Á myndinni heldur hann vel að merkja á kaffidrykk.

Silvia Fruncillo

er frá Villafranca sem er lítill bær á Ítalíu. Hún fæddist 1. júní 1993 og býr með foreldrum sínum og eldri systur. Áhugamál hennar eru tónlist, lestur, sund og leikfimi. Silvia stefnir á háskólanám og langar að verða viðskiptaráðgjafi í framtíðinni.

Stephanie Day-Goodman

fæddist 10. janúar 1995. Hún býr í Eugene í Oregon í Bandaríkjunum ásamt fjölskyldu sinni og eldri bróðir. Stephanie er skáti og spilar á píanó. Stephanie finnst AFS mjög spennandi kostur til þess að læra og upplifa margbreytileika mannsins og mismunandi menningarheima. AFS leitar að fjölskyldu fyrir Stephanie úti á landi og fer hún í grunnskóla.

Yuta Oda

fæddist 16. maí 1992 og er frá Japan. Hann býr með foreldrum sínum, bróður, ömmu og fjórum hundum í Utsumi. Hann æfir sund. Yuta langar að verða verkfræðingur í framtíðinni og er nú í Tækniskóla Toyota. Hann hefur lesið að við getum notað jarðvarma sem orkugjafa og langar að verða umhverfis- eða visttæknifræðingur í framtíðinni.

Get the Flash Player to see this player.

 

Að taka á móti skiptinema

Upplýsingar fyrir verðandi fósturfjölskyldur

  • Skiptineminn verður hluti af fjölskyldunni.
  • Hann á að taka þátt í heimilislífi og -haldi.
  • Fósturfjölskyldan útvegar fæði og húsnæði.
  • Skiptineminn er sjálfur með vasapening fyrir bíó og tónleikum.
  • AFS sér um að útvega námsbækur.
  • AFS sér um að greiða skólagjöldin.
  • AFS greiðir strætókostnað ef vegalengd til skóla er meira en 2 km.
  • Sumar fjölskyldur vilja hýsa hálft tímabilið.
  • Aðrar fjölskyldur vilja hýsa allt tímabilið.
Exclamationmarkenthusiastic_xl